bb.is | 09.10.2008 | 08:27Prjónympíuleikar og leiklistarkeppni á Veturnóttum
Undirbúningur fyrir lista- og menningarhátíðina Veturnætur gengur vel og viðamikil dagskrá er að líta dagsins ljós en hátíðin fer fram í Ísafjarðarbæ dagana 23.-26. október. Langur laugardagur er meðal dagskrárliða eins og venjulega og að sögn Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, eins skipuleggjenda hátíðarinnar, eru allir búðareigendur sem rætt hefur verið við í „góðum fíling“. Verið er að setja saman tónlistaratriði og önnur atriði sem flakka á milli búða og skemmta viðskiptavinum milli klukkan 11 og 16. Þá stendur til að halda svokallaða prjónympíuleika þar sem keppt verður í 10 garða hraðprjóni, 4X10 garða boðprjóni og 50 garða langprjóni. Einnig er fyrirhugað leiklistarkeppni með gettó-sniði, svokallað act-off þar sem lið keppast um að útleika mótherjana. Þar fyrir utan verður ýmislegt annað í boði; Abba-show, konukvöld á veitingastaðnum Við Pollinn, myndlistarsýningar og sögusýningar og stjörnuskoðunarnámskeið svo eitthvað sé nefnt. Rúsínan í pylsuendanum verður svo útnefning bæjarlistarmanns Ísafjarðarbæjar.
Hátíðin var fyrst haldin árið 1997 og var upphaflega einkaframtak öflugs áhugahóps sem unnið hefur að menningar- og ferðamálum á Ísafirði. Veturnætur voru endurvaktar fyrir fimm árum og hafa síðan verið fastur liður í mannlífinu á svæðinu í kringum vetrardaginn fyrsta.
Þeir sem eru með hugmyndir að skemmtilegum dagskrárliðum er bent á að hafa samband við skipuleggjendur, Hálfdán Bjarka Hálfdánsson eða Heimi Hansson.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.