bb.is | 05.03.2009 | 13:32Öryggi leikara á texta mjög mikið
Góður rómur hefur verið gerður að uppfærslu Leikfélags Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði en einungis þrjár sýningar eru eftir. Leikritið er sett upp í tengslum við árvissa Sólrisuhátíð menntskælinga og að þessu sinni var tekið fyrir „Draumur á Jónsmessunótt“ eftir William Shakespeare í leikstjórn Eddu-verðlaunahafans Helgu Rakelar Rafnsdóttur. Í leikdómi sem birtist í Bæjarins besta í dag segir að leikarar standi sig vel í höndum góðs leikstjóra. „Öryggi aðalleikarana á texta verksins var ótrúlega mikið og er víst að þeir hafa lagt mikla vinnu á sig við að setja verkið upp. Um 30 menntskælingar koma að verkinu sem er farsakenndur gamanleikur byggður á misskilningi eins og svo mörg af verkum Shakespeare. Leikritið fjallar um fjóra elskendur sem fléttast inn í ævintýraheim þegar þau verða peð í prettum álfakóngsins Óberon og Títaníu hans ektafrú.Í dómnum segir einnig: „Óberón er gríðarlega vel leikinn af Sverri Vídalín Eiríkssyni. Raddbeiting Sverris og öryggi í textaflutningi gerði Óberón trúverðugan sem yfirlætis álfakóng. Bokki fór einstaklega vel í höndum Elínar Sveinsdóttur. Hún náði lævísi og undirferli Bokka sérstaklega vel og gerði hann ógleymanlegan í augum áhorfenda og uppskar mikil hlátursköll. Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir sló ekki feilnótu sem álfadrottningin Títanía og var líkt og hún hefði aldrei gert annað en að leika fyrir framan áhorfendur. Hlutskipti elskendanna fjögurra í skóginum voru ekki öfundsverð að túlka. María Sigríður Halldórsdóttir var mjög góð í hlutverki hinnar ástsjúku Helenu og var tímasetning hennar á kómískum augnablikum einstaklega góð. Í leikhúsi er afar mikilvægt að leikarar haldi áfram með rulluna sama hvað bjátar á og þar fær María Sigríður hrós er hún fipaðist í eitt skipti á textanum en hélt ótrauð áfram þannig að áhorfendur tóku vart eftir.
Daði Már Guðmundsson var svo sannarlega sannfærandi sem Lísander. Það á sama við um Daða Má, Sverri Vídalín og Andra Pétur Þrastarson. Raddbeiting og öryggi á textanum var til fyrirmyndar hjá drengjunum og varð leikritið mjög þétt að tilstuðlan þeirra. Berglind Halla Elíasdóttir var mjög góð í sínu hlutverki sem Heremía og fóru hún og María Sigríður á kostum í óborganlegri slagsmálasenu. Ein af fyndnari senum verksins er hlutur Handverksmannanna en þar er þáttur Elmu Sturludóttur stór. Hún fór á kostum sem Spóli og spjátrungslegir tilburðir og yfirvaxið sjálfsálit Spóla kættu áhorfendur mikið. Fyndnustu hlutverk verksins eru Spóli og Bokki og bjóða þau hlutverk upp á mesta rýmið fyrir kómíska leiktilburði en það verður ekki tekið af Elínu og Elmu að þær léku hlutverkin einstaklega vel og fór brosið ekki af áhorfendum er þær léku um sviðið.
Hins vegar var afar skemmtileg nálgun leikstjórans að láta handverksmennina vera alla leikna af kvenkyns leikurum. Handverksmennirnir taka sig einstaklega hátíðlega sem karlkyns leikara og var það þeim mun fyndnara í meðförum Bergrósar Evu, Klöru Dísar, Söru Rósar, Berglindar Ingu og Bylgju Drafnar, að ógleymdri Elmu. Eigeifur, æstur faðir Hermíar, var mjög góður í höndum Benedikts Birkis Haukssonar og Andrea Gylfadóttir og Stephen Albert Björnsson voru mjög traust í hlutverki Hippólítu og Þeiseifs. Tónlistarflutningur var mjög fagmannlegur og er þáttur Ásgeirs Helga Þrastarssonar og Elvu Bjarkar Guðmundsdóttur einstaklega vel unninn (svei mér þá ef Ásgeir Helgi stelur ekki senunni í eitt skiptið).“ Dóminn má sjá í heild í Bæjarins besta í dag.
Þess má geta að sýning er í kvöld kl. 20 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og á sunnudag kl.16 og 20. Miðapantanir eru í síma 450–5555 og kostar 2000 krónur fyrir einstaklinga í NMÍ en 2200 krónur fyrir einstaklinga utan NMÍ.
thelma@bb.is
Til baka - Prenta frétt - Senda frétt - Senda á Facebook
Kommentað um frétt (0 Komment )
Til að geta kommentað um fréttir þarftu að innskrá þig í dálkinum vinstra megin, eða nýskrá þig ef þú ert ekki þegar skráður.