Veturnætur: lúðrasveit TÍ spilaði í Neista

Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar spilaði í gær í Neista fyrir gesti og gangandi. Var atburðurinn liður í Veturnóttum á Ísafirði, sem hófust á miðvikudaginn og standa fram á sunnudag.

Töluverður fjöldi fylgdist með hljómsveitinni og kunni greinilega vel að meta þetta framtak.

Myndir: Kristinn H. Gunnarsson.

DEILA