Saga Hnífsdals kemur út!

Bókin Saga Hnífsdals kemur formlega út fimmtudaginn 31. ágúst næstkomandi og verður útgáfunni fagnað með hófi í Félagsheimilinu í Hnífsdal sama dag. Saga Hnífsdals er saga fólksins þar frá landnámi til sameiningar við Ísafjörð árið 1971. Í bókinni er lýst sviptingasamri jarðasögu, sögu útgerðar sem þróaðist og myndaði stórt þorp með 500 íbúum, hörðum stéttaátökum, stofnun félagasamtaka og uppbyggingar gróskumikils mannlífs og menningar.

Þessi tímamótabók er metnaðarfullt fræðiverk en einnig heillandi saga Hnífsdælinga fram á okkar daga – stór saga af litlu þorpi sem markaði spor í sögu þjóðarinnar.

Höfundur bókarinnar, Kristján Pálsson, er uppalinn á Ísafirði. Hann hefur starfað sem sjómaður og útgerðarmaður, sem sveitarstjóri á Suðureyri og sem bæjarstjóri í Ólafsvík og í Njarðvík. Þá sat hann á Alþingi í átta ár. Eftir farsælan feril í útgerð og stjórnmálum lauk Kristján meistaraprófi í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Hnífsdælingar sem og allir aðrir eru hjartanlega velkomnir að samfagna með höfundi og aðstandendum í Félagsheimilinu í Hnífsdal, fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17.00 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og bókin mun fást á sérstökum útgáfuhófs-kjörum. Daginn eftir, föstudaginn 1. september verður útgáfuhóf af sama toga í verslun Eymundsson við Skólavörðustíg kl. 17.00 einnig.

DEILA