Ísafjörður: fundur félagsmálaráðherra á morgun um málefni fatlaðs fólks

Guðmundur ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra verður á Ísafirði á morgun og heldur fund í Edinborgarhúsinu um landsáætlun um málefni fatlaðs fólks. Er fundurinn liður í fundaröð um land allt málefnið. Á fundunum verður fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skuli lögfestur á kjörtímabilinu. Undir lok árs í fyrra var hleypt af stokkunum umfangsmikilli vinnu við gerð landsáætlunar til að tryggja farsæla innleiðingu samningsins. Grundvallarhugmyndin er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Á fundunum mun ráðherra flytja opnunarávarp og kynnt verða nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða verður kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

Fundurinn hefst kl 12 í Edinborgarhúsinu á morgun 21. júní.

DEILA