Götuveislan á Flateyri um helgina

Um næstu helgi verður götuveislan á Flateyri haldin. Dagskrá hefst reyndar strax á morgun með barsvari á Vagninum sem hefst kl 21. Á fimmtudagskvöldið verða tónleikar á Vagninum og Palla partý í Ólafstúni á föstudagskvöldið. Á laugardaginn verður dagskrá frá kl 11 um morguninn og fram á nótt. Eftir hádegið frá kl 13 – 15 verður dagskrá í minningargarðinum með götumarkaði og hoppukastala. Kvöldvaka hefst kl 20.

Þeir sem hafa áhuga á að selja sína vöru á götumarkaðinum geta enn skráð sig hjá magnuseinar89@gmail.com.

DEILA