Bílatangi nýr þjónustuaðili Kia og Honda á Vestfjörðum

Bílatangi ehf. og Bílaumboðið Askja hafa gert samkomulag um að Bílatangi verði nýr þjónustuaðili Kia og Honda á Vestfjörðum.

Sigurbjörn hefur rekið Bílatanga í 32 ár eða frá stofnun árið 1991. Það er því óhætt að segja að mikil reynsla sé hjá Bílatanga!

Eigendur eru þeir Sigurbjörn Karl Karlsson og Davíð Halldór Barðason.

Bílatangi er staðsettur á Suðurgötu 9, Ísafirði.

DEILA