Kverkatak

Í upphafi síðasta mánaðar kynnti Samkeppnisstofnun skýrslu um samráð skipafélaganna Eimskipa og Samskipa og að stjórnendur Eimskipa hafi samþykkt 1,2 milljarða sekt, en mál sé höfðað gegn Samskipum þar sem farið er fram á 4,2 milljarða í sekt.

Hverjir borga þessar sektir að endingu aðrir en neytendur.  Sektirnar munu beinast að fólkinu í landinu.

Í stað þess að beinast að gerendum og fyrirtækjunum. Við athugun á viðurlögum við broti á samkeppnislögum geta þau verið allt að 6 ára fangelsi. En um það má lesa í 4. kafla 1. greinar samkeppnislaganna.

Þar vantar ákvæði um að leggja megi hald á og gera upptæk þau fyrirtæki sem gerist sannarlega brotleg við umrædd lög.

Frá því þessi frétt um samráð Eimskipa og Samskipa kom fram í dagsljósið í upphafi mánaðarins hefur lítið sem ekkert verið fjallað um hana í stærri fjölmiðlum. Í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi kom enginn inn á þetta samráð. En þetta snertir alla þjóðina.

Ef þetta hefði komið upp í Frakklandi væri verið að mótmæla á götum úti, svo eftir væri tekið. Eitthvað í líkingu við það sem gerðist hér í janúar 2009. Ef einhvern tímann hefur verið ástæða til að mótmæla á Íslandi væri það núna. En ég á nú kannski ekki að vera að kynda undir mótmælum, starfandi lögreglumaðurinn

En hvað ætlar ríkisstjórnin að gera í þessu máli?  Fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í viðtali við RÚV að hann væri að íhuga að fara í mál við skipafélögin. Segist íhuga að fara í mál við fyrirtæki sem hugsanlega hafa svikið út háar upphæðir frá ríkinu og þar af leiðandi fólkinu í landinu. Það má ekki gleyma hverjir eiga og stjórna Eimskip, Samherji er stærsti hluthafi Eimskipa.

Ráðherra viðskipta sem er og varaformaður Framsóknarflokksins sagði í viðtali við RUV í upphafi mánaðarins að það verði verkefni ríkisstjórnarinnar það sem eftir lifir kjörtímabils að skoða þetta mál. Þarna þarf aðgerðir strax en ekki íhuganir og skoðanir á meðan þjóðinni blæðir.

Umræddur viðskiptaráðherra talar um í framhjáhlaupi í sama viðtali að hún sé mikil áhugamanneskja um verðbólgu og ætli að vinna í henni. Hún talar eins og manneskja í einhverjum skokk hóp, með fullri virðingu fyrir skokkurum, um hver hennar önnur áhugamál séu en ekki eins og ráðherra í ríkisstjórn með vald til að gera eitthvað í þessum málum. En þess má geta að þessi ráðherra og varaformaður framsóknarflokksins er ein þriggja ráðherra í svokölluðu efnahagsráði ríkisstjórnarinnar og ku víst vera hagfræðingur að auki.

Nei þessi ríkisstjórn er ekki að gera neitt fyrir fólkið í landinu. Þau ætla bara að sitja út kjörtímabilið, hvað sem það kostar þjóðarbúið

Það hlýtur að vera krafa hins almenna launamanns í landinu að gripið verði til aðgerða strax gegn þessu samráði þannig að það verði losað um þetta kverkatak sem þessi tvö skipafélög, sem stjórna 90% af innflutnings markaðnum, hafa á þjóðinni.

Gylfi Þór Gíslason

Höfundur er formaður

Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar

og

formaður Samfylkingarinnar á Vestfjörðum

DEILA