Hvað hefur sjávarútvegurinn gert fyrir þig? – SFS með fund á Ísafirði

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Mynd: RÚV.

Sjálfbær nýting sjávarauðlindarinnar og hvernig arðinum af henni er skipt varðar okkur öll. Við efnum nú til fjölda funda um landið og viljum heyra, beint og milliliðalaust, hvað brennur á fólki í tengslum við sjávarútveg. 

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, leiðir fundina og fær til liðs við sig Konráð S. Guðjónsson, hagfræðing hjá Arion banka, og Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa, til að varpa sínu ljósi á sjávarútveginn.

Við lofum upplýsandi erindum og líflegum umræðum.

Hlökkum til að sjá þig!

Nánari upplýsingar á hringferd.sfs.is 

*Hér eru svo staðirnir og tímasetningar – þannig fyrir hvernig bæjarmiðil má auglýsa sérstaklega þann stað sem á við.

Mánudagur 16. Október

Ísafjörður

Edinborgarhúsið kl. 16.30

Þriðjudagur 17. október

Ólafsvík 

Sker kl. 16.30

Mánudagur 6. nóvember 

Egilsstaðir

Hótel Valaskjálf 16.30

Þriðjudagur 7. nóvember 

Akureyri

Hótel KEA kl. 16.30

Miðvikudagur 8. nóvember

Vestmannaeyjar

Þekkingarsetur Vestmannaeyja kl. 16.30

Fimmtudagur 9. nóvember

Grindavík

Salthúsið kl. 16.30

Föstudagur 10. nóvember

Reykjavík

Silfurberg kl. 08.30

(fréttatilkynning)

DEILA