Ísafjarðarbær: breytingar í nefndum hjá Sjálfstæðismönnum

Á bæjarstjórnarfundi í Ísafjarðarbæ á þriðjudaginn voru samþykktar breytingar á nefndarskipan Sjálfstæðismanna í þremur nefndum.

Í fræðslunefnd var Dagný Finnbjörnsdóttir kosin aðalmaður D-lista í fræðslunefnd, í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur, sem var kosin varamaður D-lista í stað Þóru Marýjar Arnórsdóttur.

Í skipulags- og mannvirkjanefnd var Steinunn Guðný Einarsdóttir kosin aðalmaður D-lista í stað Aðalsteins Egils Traustasonar. Jafnframt var Þóra Marý Arnórsdóttir kosin varamaður í stað Steinunnar Guðnýjar Einarsdóttur.

Þá var einnig gerð breyting í umhverfis- og framkvæmdanefnd hjá D lista.  Þóra Marý Arnórsdóttir var kosin aðalmaður í stað Dagnýjar Finnbjörnsdóttur.

DEILA