Reykhólahreppur: sveitarstjóri í veikindaleyfi

Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum í gær að fela Árnýju Huld Haraldsdóttur, oddvita að gegna starfi sveitarstjóra að hálfu leyti eða 50%. Gildir þetta fyrirkomulag út marsmánuð. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri hefur átt við veikindi að stríða en sinnir starfinu að 50%. Hún staðfesti þetta við Bæjarins besta og mun koma að fullu til starfa í apríl.

DEILA