Leiklistarnámskeið á Þingeyri

Kómedíuleikhúsið býður uppá ókeypis leiklistarnámskeið fyrir grunnskólanema á Þingeyri.


Leiklistarnámskeiðið verður haldið helgina 11. og 12. mars, frá kl.11.00 til 13.30 báða dagana.
Kennt verður í Leiklistarmiðstöð Kómedíuleikhússins Vallargötu 3.


Þó ókeypis sé þá er mikilvægt að skrá sig. Það er einfalt að skrá sig einfaldlega sendið tölvupóst á netfangið komedia@komedia.is Skráningu lýkur föstudaginn 10. mars.


Kennari er Dóra Jónasdóttir sem hefur unnið frábært starf í gegnum árin með börnum og unglingum og staðið fyrir fjölmörgum leiksýningum á Ísafirði og í Bolungarvík.

DEILA