Bæjarráð Ísafjarðarbæjar: áfellisdómur yfir stjórnsýslunni

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar tók fyrir á fundi sínum í morgun skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í bókun þess segir að skýrslan sé áfellisdómur yfir stjórnsýslunni, aðkoma sveitarfélaga hafi lítil verið og að efla þurfi rannsóknir og eftirlit. Vill bæjarráðið að störf verði byggð upp heima í héraði.

Aðspurður sagði Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs að „hvað varðar störfin erum við helst að hugsa um MAST, Hafró og Umhverfisstofnun í þessu samhengi.“

„Skýrslan er áfellisdómur yfir stjórnsýslu fiskeldis. Hún kemur sveitarfélögum á Vestfjörðum ekki á óvart sem hafa í mörg ár bent á að efla þurfi rannsóknir og eftirlit í greininni, og tryggja að ferli leyfisveitinga sé skilvirkt og gott. Aðkoma sveitarfélaga hefur verið lítil og ekki hlustað á raddir úr héraði.

Störf tengd rannsóknum, eftirliti og menntun þarf að byggja upp í nærumhverfi atvinnugreinarinnar. Fiskeldistengd starfsemi fagstofnana hefur verið vanfjármögnuð og ekki skipulögð með tilliti til staðsetningar eða eðlis greinarinnar.

Fiskeldið er nú þegar orðin stór og burðug atvinnugrein í Vestfirsku samfélagi sem er komin til að vera. Tryggja þarf að tekjur komi til nærumhverfis greinarinnar, þannig að sá peningur sem rennur nú í fiskeldissjóð verði meiri.

Með tilkomu skýrslunnar er ljóst að hægt er að fara í aðgerðir til að styrkja og bæta stjórnsýsluna. Þannig geti fiskeldi vaxið í sátt við samfélag og náttúru.“

DEILA