Uppskrift vikunnar: gúllas

Þegar fer að hausta er fátt betra en bragðmikið gúllas sem hefur fengið að malla klukkustundum saman. Bragðið verður óviðjafnanlegt. Þessi uppskrift er nokkuð stór og því góð ef von er á gestum.

3 meðalstórir laukar

2 meðalstórar gulrætur

2 grænar paprikur

750 grömm gúllas kjöt

salt

pipar

2 msk. ólífuolía

1-1/2 bolli nautasoð

¼ bolli hveiti

3 msk. paprikuduft

2 msk. tómatkrafur

1 tsk. kúmenfræ

1 stór hvítlauksgeiri

örlítill sykur

1 bolli sýrður rjómi

Eggjanúðlur

Sneiðið laukinn, gulræturnar, og paprikurnar og setjið í eldfast fat eða góðan pott. Saltið og piprið kjötið og brúnið í olíu á þykkbotna pönnu þegar búið er að brúna kjötið er það sett í eldfasta fatið eða pottinn. Hellið soðinu á pönnuna og skafið upp úr botninum á henni. Hræið hveitinu saman við soðið, kryddið með paprikuduftinu, tómatkraftinum, kúmenfræjunum, merjið hvítlauksrifið út í, bætið því næst nokkrum sykurkornum út á pönnuna. Saltið og piprið. Látið suðuna koma upp og látið sjóða í um það bil tvær mínútur eða þangað til sósan hefur þykknað. Hellið yfir kjötið og grænmetið og setjið inn í 100 gráðu heitan ofn í 7 til 9 klukkustundir eða þangað til kjötið er orðið vel meyrt. Það er líka hægt að láta þetta malla á vægum hita í nokkrar klukkustundir í góðum potti á eldavélinni. Áður en þið berið réttinn fram sjóðið þá eggjanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum og berið fram með gúllasinu. Áður en þið skellið kjötinu á borðið hræið þá sýrða rjómanum saman við. Með þessari uppskrift er líka mjög gott að bera fram grófa kartöflumús eða sætkartöflumús.

Verði ykkur að góðu.

Halla Lúthersdóttir

DEILA