vestfirska forlagið: „Að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja“

Ný bók frá Vestfirska forlaginu:

„Að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja“

Gleði mikil var ríkjandi á Rauðsstöðum í Borgarfirði, einum af innfjörðum Arnarfjarðar, 14. september 2017. Þá sprengdi samgönguráðherrann okkar, Jón Gunnarsson, fyrstu sprenginguna í gangamunna Dýrafjarðarganga. Í framhaldi af ráðherrasprengingunni sprakk svo ríkisstjórnin um kvöldið. En allir vita að ekkert samband er náttúrlega þar á milli!

Einar Benediktsson orti:

Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja,

án fræðslu þess liðna sést ei, hvað er nýtt.“

Í þessari handhægu bók er lítillega hugað að sögu jarðanna Rauðsstaða og Borgar við þessi merku tímamót í samgöngusögu Vestfjarða. Þeir góðu og hugrökku menn sem að verkinu standa ásamt gestum og gangandi ættu að hafa gagn og gaman af þeim fróðleik. Gangamunninn er nefnilega aðeins nokkra metra frá bæjarstæði Rauðsstaða og skammt er til Borgar í öllu tilliti. Gangagerðin er samtvinnuð  jörðunum tveimur hvernig sem á er litið. En hér er ekki á nokkurn hátt verið að fjalla um göngin sem slík, heldur nánasta umhverfi þeirra Borgarfjarðarmegin.

Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til Búnaðarfélags Auðkúluhrepps.

 

DEILA