Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur samþykkt fjárhaægsáætlun næsta árs. Niðurstöðutölur hennar eru að rekstrarafkoma A hluta er áætluð jákvæð um kr. 25.563.000. Samanlögð afkoma A og B hluta er áætluð jákvæð um kr. 22.779.000.
Ráðist var í miklar hagræðingaraðgerðir á yfirstandandi ári til að lækka útgjöld og sérstakur fjárhagsstuðningur fékkst frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum verður sértækur stuðningur ráðuneytisins að upphæð 47 milljónir á árinu 2022 og 18 milljónir árið 2023.
Gert er ráð fyrir eftirfarandi framkvæmdum á árinu 2022:
- Nýr inngangur ofan við grunnskóla 25.000.000.
- Brunavarnir skv. úttekt og frágangur ofan við grunnskóla 4.500.000.
- Viðhald í Íþróttamiðstöð, m.a. búningsklefar og sturtur, gluggi í sal og lagnaviðgerðir 10.100.000.
- Leikskólalóð, undirbúningsvinna, efnisskipti og drenlagnir 6.000.000.
- Staðarkirkjugarður, hlutdeild Strandabyggðar í efniskostnaði samkvæmt lögum 2.400.000.
- Yfirlagnir á götur í Austurtúni og Miðtúni 2.500.000.
- Bryggjukrani, tæki og uppsetning 10.000.000.
- Staðarrétt nýbygging 5.000.000.
- Fjárrétt við Krossá í Bitru 2.000.000.
- Félagsheimili: Inngangur í kjallara, aðgengi fyrir fatlaða 1.500.000.
- Aðal- og deiliskipulag: Samningur við Landmótun um skipulagsvinnu 4.000.000.
- Gatnagerð Borgabraut og fleiri smáverkefni 2.000.000.
- Slökkvilið: Búnaður og útbúnaður bíls 1.500.000.
- Vatnsveita: Dælur og lagnir 3.000.000.
- Fráveita: Lagnir 2.000.000.
- Veitustofnun: Ljósleiðari 2.000.000.
Heildarkostnaður vegna framkvæmda á árinu 2022 er áætlaður kr. 83.500.000.
Tekið verður lán að upphæð kr. 35.000.000. á árinu 2022, fyrir afborgunum hjá Lánasjóði sveitarfélaga, og að öðru leyti nýtt að mestu leyti til framkvæmda.