Vísindaport Háskólaseturs með kynningu á PIFF

Í Vísindaporti næsta föstudag þann 13. október munu aðstandendur kvikmyndahátíðarinnar Piff koma og segja frá hátíðinni sem haldin er á Ísafirði 13. til 16. október.


Á kvikmyndahátíðinni verða sýndar myndir frá öllum heimshornum.

Í ár verða margar góðar myndir þar á meðal opnunarmyndin “ Lunana: A Yak In A Classroom“ sem var tilnefnd fyrir Óskarinn í ár fyrir erlendar kvikmyndir. Það mun koma yfir 20 erlendir gestir á hátíðina og þar á meðal verða þekktir leikstjórar og leikarar.

Það verða sýndar kvikmyndir, stuttmyndir, heimildarmyndir, barnamyndir og hreyfimyndir.

Hægt verður að kaupa passa á allar myndir á 7.000 en það kostar 1000 á hverja sýningu, það eru um 5 stuttmyndir í pakka og svo kvikmyndir sér.

Frítt verður í Súðavík og á sér atburði sem verða annastaðar en í Ísafjarðarbíó.

DEILA