Verkefninu Göngum í skólann 2023 lokið

Myndin var tekin þegar Grunnskóli Hornafjarðar afhenti Gullskóinn tveimur bekkjum, þar sem nemendur voru duglegastir að nýta sér virkan ferðamáta.

Þá er verkefninu Göngum í skólann lokið.  Í ár tóku 83 grunnskólar þátt, sem er met hérlendis, og það er virkilega ánægjulegt að sjá hvað skólastjórnendur hafa tekið Göngum í skólann verkefninu vel. 

Allir þátttökuskólar hafa fengið þakkarbréf ásamt viðurkenningaskjali og gjöf til skólans, sem nýtist í leik og starfi þeirra.  Þeir skólar sem sendu aukalega inn efni, myndir, myndbönd eða frásagnir fá auka glaðning.  

Árlega taka milljónir barna þátt, frá yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heiminn, í verkefninu Göngum í skólann.

Markmið verkefnisins er að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

Einnig að stuðla að heilbrigðum lífsstíll, draga úr umferð við skóla og þar með úr umferðarþunganum sem myndast, mengun og hraðakstri nálægt skólum, ásamt því að stuðla að vitundarvakningu um virkan ferðamáta og minna á umhverfismál.

DEILA