Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Ólympíuhlaup ÍSÍ var formlega sett í Grundaskóla á Akranesi þann 7. september síðastliðinn þar sem nemendur voru til fyrirmyndar og allt skipulag í kringum hlaupið mjög gott.  Veðrið lék líka við hlauparana, hlýtt, logn en smá rigning. 

Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur í grunnskólum landsins til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hver skóli sem tekur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ fær viðurkenningu þar sem fram kemur hversu margir nemendur tóku þátt og heildarfjöldi kílómetra sem nemendur lögðu að baki. Þátttakan í ár hefur verið mjög góð, en nú hafa 68 grunnskólar skilað inn niðurstöðum og 16.134 nemandur hlaupið samtals 56.997 kílómetra eða rúmlega 43 sinnum í kringum landið.

Í ár eins og undanfarin ár hafa þrír skólar sem lokið hafa hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ fyrir 10. október verið dregnir út.

Þessir skólar eru Ártúnsskóli í Reykjavík, Síðuskóli á Akureyri og Stekkjaskóli á Selfossi. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

DEILA