Vel heppnaðir tónleikar í Dalbæ

Berta Dröfn Ómarsdóttir og Svanur Vilbergsson. Myndir: Ólafur Jóhann Engilbertsson.

Dagskrá verslunarmannahelgarinnar í Dalbæ á Snæfjallaströnd fór fram í frábæru veðri, sól, Djúplogni og hátt í 20 stiga hita. Monika Abendroth lék á hörpu á veröndinni. Berta Dröfn Ómarsdóttir og Svanur Vilbergsson fluttu perlur eftir Kaldalóns og fleiri, Arnljótur Sigurðsson, Kraftgalli, flutti frumsamið efni ásamt Svölu Louise Leaman. Loks kom Gísli Jens Guðmundsson á svið og kom fólki í gírinn fyrir hlöðupartý á Lyngholti um kvöldið.

Monika Abendroth.
Arnljótur og Svala Leaman.
Gísli Jens Guðmundsson.

DEILA