Sjúkraflug: Norlandair bauð lægst

Á föstudaginn voru opnuð hjá Ríkiskaupum tilboð sem bárust í sjúkraflug á Íslandi. Tvö tilboð bárust. Norlandair bauð 775.470.929 kr og Mýflug bauð 889.110.000 kr. Kostnaðaráætlun kaupanda er: 857.824.495 kr.

Tilboð Norlandair var 10% undir kostnaðaráætlun eða 83 m.kr. og Mýflaug bauð 3,7% yfir kostnaðaráætlun.

Boðið var út allt sjúkraflug á Íslandi til þriggja ára 2024 – 2026.

Mýflug hefur verið með sjúkarflugið um árabil.

DEILA