Tindar Hnífsdal: sjómannadagskaffi

Hið árlega sjómannadagskaffi Slysavarnardeildarinnar í Hnífsdal verður haldið á Sjómannadaginn, nk. sunnudag kl. 15:00, í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Sjómannadagskaffið hefur verið árlegur viðburður frá því um 1980 og eina sem hefur komið í veg fyrir kaffið var þegar veiran skæða tröllreið öllu árið 2020. Verð á mann er 2.500 kr. fyrir fullorðna, 1.000 kr. fyrir börn 7-12 ára og börn 6 ára og yngri borga ekkert.

Í samtali við Ómar Örn, hjá Slysavarnardeildinni í Hnífsdal segir að sjómannadagskaffið sé ein af stærri fjáröflununum hjá þeim, en líka ein sú skemmtilegasta. „Að venju munu veisluborðin svigna undan alvöru heimagerðum kræsingum sem Hnífsdælingar og aðrir velunnarar hafa töfrað fram. Alvöru brauðtertur eins og amma gerði alltaf, dísudraumur frá hinni einu sönnu Dísu og alvöru upprúllaðar pönnsur. Ef þú misstir af öllum fermingarveislunum og Fossavatnskaffinu þá er þetta sú veisla sem þú ættir að stíla inn á.“

DEILA