Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur á morgun

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarins kemur vestur á morgun. Það er Sea Spirit sem kemur til Suðureyrar klukkan sex að morgni og verður til kl 13. Með skipinu verða að hámarki 114 farþegar og í áhöfn eru 72 manns.

Á laugardaginn kemur fyrsta skipið til Ísafjarðar. AIDAbella kemur um morguninn og verður til kvölds. Með skipinu geta verið 2.050 farþegar og í áhöfninni eru 646.

Í maímánuði verða 12 komur skemmtiferðaskipa, ein til Suðureyrar og 11 til Ísafjarðar. Þann 21. maí eru skrá tvö skip með samtals liðlega 5000 farþega.

Í sumar eru skráðar nærri 200 skipakomur til hafna Ísafjarðarbæjar, þrjár til Suðureyrar og hinar til Ísafjarðar. Síðasta koman verður 5. október þegar N.G. Endurance kemur með 148 farþega.

Alls ellefu daga í sumar eru skráð skip með fleiri en 5.000 farþega sem búast má við að komi í land.

DEILA