Hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins heldur áfram

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heldur áfram hringferð sinni um landið dagana 20. – 22. apríl og er nú á Vestfjörðum

  • Í gær heimsótti þingflokkurinn Akranes, Búðardal og Patreksfjörð.
  • Í dag föstudag sækir þingflokkurinn Tálknafjörð, Bíldudal, Mjólkárvirkjun, Flateyri, Ísafjörð og Bolungarvík heim.
  • Á morgun laugardag heimsækir þingflokkurinn Súðavík og Hólmavík.

Hringferð þingflokks hófst í febrúar en þá heimsótti þingflokkurinn Vesturland (að undanskildu Akranesi og Búðardal), Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland og Suðurnes.
Síðar í vor mun þingflokkurinn heimsækja Vestmannaeyjar og að lokum verður höfuðborgarsvæðið sótt heim.

Hringferðin er sú fimmta í röðinni síðan fyrsta ferðin var farin í febrúar 2019 og er orðin að árlegum viðburði.
Hringferðir gefa bæði þingmönnum flokksins og íbúum um land allt einstakt tækifæri til að hittast og ræða saman.

DEILA