Hafró: málstofa um lúsasmit og heilsufar villtra laxfiska á Vestfjörðum og Austfjörðum

Fimmtudaginn 15. desember kl. 12:30 verður málstofa um lúsasmit og heilsufar villtra laxfiska á Vestfjörðum og Austfjörðum haldin í fundarsal Hafrannsóknarstofnunar á 1. hæð að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði.

Erindi verður streymt á YouTube síðu Hafrannsóknastofnunar.

Það er Vestfirðingurinn Eva Dögg Jóhannesdóttir sem flytur erindið.

Verkefnið hófst formlega í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og Keldur árið 2021 þegar styrkur fyrir þriggja ára verkefni fékkst frá Umhverfissjóði Sjókvíaeldis til vöktunar á bæði Vestfjörðum og Austfjörðum. Sýnum úr villtum laxfiskum hefur þó verið safnað í einum eða fleiri fjörðum Vestfjarða árin 2014 og 2017-2020 og í Eskifirði 2020. Þetta er því fyrsta langtímaverkefnið sem farið hefur verið í ásamt því að vera það yfirgripsmesta bæði þegar litið er til fjölda staðsetning og umfangs sýnatöku úr fiskum.
Bæði árin veiddust bleikja, sjóbirtingur og lax ásamt regnbogasilung og hnúðlax árið 2021 og var fiskurinn almennt heilbrigður og ekki fundust sjúkdómsvaldandi veirur í fiskum. Á Austfjörðum fundust engar lýs nema árið 2021. Lýs var að finna í öllum fjörðum sem veitt var í á Vestfjörðum bæði árin nema í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi árið 2021 en ekki náðist að veiða þar í ár.

Í kynningu á erindinu segir að vöktun villtra laxfiska í sjó sé mikilvæg í ljósi þess að laxeldi virðist vera komið til að vera og mun að líkum aukast á komandi árum.

Laxalús (Lepeophtheirus salmonis) og fiskilús (Caligus elongatus) eru náttúruleg sníkjudýr á villtum laxfiskum.
Athuganir erlendis frá benda til að lúsasmit aukist á villtum laxfiskum í nágrenni við laxfiskaeldi í sjó. Sjókvíaeldi á laxi hefur verið í veldisvexti á bæði Vestfjörðum og Austfjörðum síðustu árin en firðirnir eru nær einu svæðin þar sem leyft er sjóeldi á laxi við strendur Íslands.

Eva Dögg Jóhannesdóttir lauk BSc gráðu í líffræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 2010 og hóf ári síðar störf hjá Náttúrustofu Vestfjarða þar sem hún starfaði helst við rannsóknir tengdum umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. Hún framkvæmdi fyrstu lúsa athuganir á eldisfiskum hjá Arctic Fish og Arnarlaxi í störfum sínum hjá Náttúrustofunni, en slíkar athuganir höfðu ekki formlega farið fram fyrr en sumarið 2015. 

Árið 2019 lauk hún meistaranámi frá Háskólanum á Hólum og fjallaði lokaverkefni hennar um lúsasmit á villtum laxfiskum á sunnanverðum Vestfjörðum. Sýnatökur fóru fram árið 2017 og hefur Eva stundað veiðar á villtum laxfiskum í sjó nær óslitið hvert sumar síðan til að athuga lúsasmit og almennt heilsufar með aðstoð Hafrannsóknastofnunar, Keldna, Fiskistofu, laxeldisfyrirtækja og síðast en ekki síst með styrk frá Umhverfissjóði Sjókvíaeldis. Samhliða námi á Hólum starfaði Eva einnig sem verkefnastjóri hjá RORUM og síðan sem líffræðingur hjá Arctic Fish.

DEILA