Síldarvinnslan kaupir í Arctic Fish

Seiðaeldisstöð Arctic Sea Farm í Tálknafirði.

Síldarvinnslan hf. hefur gengið frá samkomulagi við Bremesco Holding Limited, Icelandic Farming Holding, NOVO, and Neil Shiran Thorisson , sem eiga samanlagt 10.899.684 hluti, eða 34,2%, í Arctic Fish Holding AS um kaup á hlutum þeirra í félaginu. Kaupverðið er NOK 1.089.968.400,- og verður greitt með reiðufé sem verður að hluta til fjármagnað með öflun lánsfjár. Einkum eru það frumkvöðlarnir Malek frá Póllandi og Sigurður Pétursson sem eru að selja hlut sinn í Arctic Fish.

Verðið eru 100 norskar krónur á hvern hlut.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar:

Laxeldi er ört vaxandi atvinnugrein sem við höfum fylgst með á undanförnum árum. Aukið fjármagn og þekking hefur komið inn í greinina á síðustu árum og við teljum vera mikil tækifæri til staðar.

Við kaupum rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fish Holding ASsem er í meirihlutaeigu norsks fiskeldisfyrirtækis þar sem er mikil þekking og reynsla í greininni. Við fögnum því að fá tækifæri til að vinna með þeim við eflingu félagsins.

Félagið hefur metnaðarfull áform og hefur verið í miklum fjárfestinga- og uppbyggingarfasa á síðustu árum. Við sjáum tækifæri í auknu samstarfi fiskeldisfyrirtækja á svæðinu.“  

DEILA