Vestfirðir: hálfrar aldar andlát til rannsóknar á ný

Lögreglan á Vestfjörðum greindi frá því í dag að á föstudaginn hefðu verið grafnar upp úr kirkjugarði á Vestfjörðum. Um var að ræða líkamsleifar einstaklings sem lést af slysförum fyrir nokkrum áratugum síðan. Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafði áður, með vitund og samþykki nánustu aðstandenda hins látna, fengið dómsúrskurð til þessara aðgerða. Hópur lögreglumanna af Vestfjörðum, ásamt tveimur tæknideildarmönnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, auk réttarlæknis og aðstoðarmanns hans, unnu við uppgröftinn.

Aðdragandi þessarar aðgerðar er sá að lögreglunni á Vestfjörðum hafði borist ábending um að umrætt slysaatvik hafi ekki verið upplýst nægjanlega á sínum tíma. Þrátt fyrir að langur tími sé liðinn eru taldar líkur á því að hægt sé að upplýsa nánar um tildrög atviksins sem um ræðir. Líkamsleifarnar eru nú til rannsóknar hjá réttarlækni og beðið er niðurstöðu þeirrar vinnu. Óvíst er hversu langan tíma þessi réttarlæknisfræðilega rannsókn tekur og ótímabært að veita frekari upplýsingar um mál þetta.

Fram kom á RUV í kvöld að kirkjugarðurinn væri á Barðaströnd og að um væri að ræða slys sem varð á Óshlíðarvegi í Bolungavík þann 23. september 1973 þegar leigubíll með tveimur farþegum valt niður grýtta hliðina. Nítján ára piltur lést í slysinu en hin tvö, maður og kona, sluppu með lítil meiðsl. Vitnað er í fréttir af slysinu sem birtust í dagblaðinu Vísi en þar kom fram að að stýrið á bílnum hefði ekki verið í sambandi þó ekki væri hægt að segja með fullri vissu að það hafi orsakað útafakstur bílsins. Þá kom síðar fram að hugsanlega hefði bremsa náð að festast með áðurnefndum afleiðingum. 

Pilturinn sem lést hét Kristinn Haukur Jóhannesson og var frá Barðaströnd, fæddur árið 1954. 

Tilgangur uppgraftarins mun vera að  reyna að greina áverkana og úrskurða um hvort þeir hafi hlotist í bílslysi eða með öðrum hætti.

DEILA