Harmónikudagurinn á Þingeyri

Harmonikkudagurinn á Þingeyri, júní 2021.

Harmonikudagurinn verdur haldinn næstkomandi laugardag þann 7. maí í Félagsheimilinu á Þingeyri frá kl. 3 til kl. 5 síðdegis.

Harmonikukallarnir á Þingeyri ásamt Baldri Geirmunds og félögum leika listir sinar.

Kvenfélagið selur kaffi og meðlæti að sínum hætti.

Rútuferð frá Ísafirði í boði félagsins. Brottför frá Hlíf kl 14 og til baka frá Þingeyri kl 17.

Tilkynna þarf hverjir þiggja far í síma 869-3134, eigi síðar en 5. maí.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Harmonikufélag Vestfjarða.

DEILA