Í næstu viku, 4. og 5. apríl , fer fram annað MAKEathon verkefnisins Grænir Frumkvöðlar Framtíðar, af þremur, í Grunnskóla Bolungarvíkur. MAKEathon Árskóla hefur þegar farið fram með glæsilegum árangri og MAKEathon Nesskóla verður á næstu vikum. MAKEathon verkefnisins er nýsköpunarkeppni sem stendur yfir tvo daga.
Í þessu MAKEathoni taka, 22 nemendur í 8-10.bekk þátt. Þeir vinna saman í teymum sem keppast við að leysa áskorun sem fundin verður á heimsóknum þeirra í sjávarútvegsfyrirtæki á svæðinu. Áskorunin mun snúa að umhverfis- og loftslagsmálum. Þeir reyna að búa til einhverskonar frumgerð (e. prototype), m.a. í samstarfi við FabLab smiðju Ísafjarðar og Djúpið Frumkvöðlasetur. Frá því í haust hafa nemendur fengið fræðslu m.a. um loftslagsbreytingar, sjálfbærni og nýsköpun. Allt efni GFF verður gert aðgengilegt eftir að verkefninu lýkur.
Verkefnið Grænir Frumkvöðlar Framtíðar hófst í skólunum í september 2021 og MAKEathonin eru lokahluti þeirra. Landskeppni á milli skólanna þriggja fer fram í maí og verða úrslit hennar kynnt í Nýsköpunarvikunni.
Sjónvarpsstöðin N4 hefur í allan vetur verið að taka upp þátt um verkefnið og verða því kvikmyndatökumenn frá þeim á staðnum. Þátturinn verður sýndur á sjónvarpsstöðinni í haust og þar verður verkefnið kynnt.
Um Græna Frumkvöðla Framtíðar
Grænir Frumkvöðlar Framtíðar er fræðsluverkefni ætlað fyrir efstu bekki grunnskóla. Markmiðið er að fræða nemendur um áhrif loftslagsbreytinga á hafið og lífríki þess, sjálfbærni og nýsköpun á nýstárlegan og skemmtilegan hátt. Verkefnið er styrkt af Loftslagssjóði og er verkefnastjórn í höndum Matís. Aðrir þátttakendur eru skólarnir þrír, FabLab smiðjur á hverujm stað, Cambridge University, Climate-KIC og Djúpið Frumvköðlasetur.
Hér er hægt að fylgjast með gangi verkefnisins:
- Heimasíða verkefnisins: https://graenirfrumkvodlar.com/
- Instagramsíða verkefnisins: https://www.instagram.com/gff_matis
