Borgarísjaki norður af Selskeri á Húnaflóa

Áhöfnin á varðskipinu Þór sigldi fram á myndarlegan borgarísjaka um 20 sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa um hádegisbil í dag. Áhöfn Þórs áætlar að ísjakinn sé um 250 metrar á lengd, 260 metrar á breidd og 15 metra hár.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum er jakinn V laga og líklegt má telja að hann sé strandaður þar sem dýpi á svæðinu er um 80 metrar. Nokkuð óvanalegt er borgarísjakar séu á þessum slóðum á þessum árstíma. Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara sjófarendur við ísjakanum enda getur hann reynst varasamur, sérstaklega í myrkri.

Mikilvægt er að þeir sem eiga leið um svæðið séu meðvitaðir um staðsetningu jakans. Þegar varðskipið Þór sigldi framhjá jakanum var hann á stað: 66°27,7N – 021°30,0V.

https://youtu.be/8IOb4KIpTTY
DEILA