Tónlistarskóli Ísafjarðar: opinn dagur og dagskrá í Hömrum

Frá tónleikunum í gær. Mynd: aðsend.

Tónlistarskóli Ísafjarðar er með opinn dag í tilefni af veturnóttum. Kl. 14:00 er gestum frjálst að fylgjast með kennslu í skólanum. Opið verður fram á gang úr stofum.

Kl 15 hefst vegleg dagskrá í Hömrum.

– Samúel Einarsson segir frá nýútkomnum geisladiski með lögum hans og spilar lög af diskinum.
– Jóngunnar Biering Margeirsson, gítarkennari, flytur eigin lög ásamt Hljómórum, en þá skipa auk Jóngunnars: Rúna Esradóttir og Svanhildur Garðarsdóttir.
– Jón Hallfreð Engilbertsson flytur ljóð úr nýútkominni ljóðabók sinni.
– Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar kynntur og heiðraður.
Léttar veitingar.

Í gær fluttu í hádeginu Sigrún Pálmadóttir, aðstoðarskólastjóri TÍ / sópransöngkona, Bergþór Pálsson, skólastjóri TÍ / barítónsöngvari og Margrét Gunnarsdóttir skólastjóri Listaskóla Rögnvaldar / píanóleikari, létt lög úr ýmsum áttum í Edinborgarhúsinu við góðar undirtektir. 

DEILA