Eigið húsnæði fyrir tekjulága

Samþykkt var á Alþingi í ágúst sl. mikið framfara mál fyrir tekjulágt fólk. Það getur nú með stuðningi ríkisins keypt sína fyrstu fasteign og haft þannig möguleika á betra búsetuöryggi til langs tíma með því að ríkið fjármagni hluta af verði hagkvæms húsnæðis.

Um er að ræða svokölluð hlutdeildarlán. Þau virka þannig að kaupandi leggur til að lágmarki 5% eigið fé og tekur 75% fasteignalán hjá lánastofnun. Ríkið lánar síðan einstaklingum sem eru að kaupa sína fyrstu eign, að vissum skilyrðum uppfylltum, ákveðið hlutfall af verði þess íbúðarhúsnæðis sem þeir hyggjast kaupa. Hlutdeildarlánin bera hvorki vexti né afborganir á lánstímanum en lántakendurnir endurgreiða hlutdeildarlánið þegar íbúðin er seld. Tekjumörk fyrir einstakling eru 7.560.000 krónur á ári  og fyrir hjón eða sambúðarfólk 10.560.000 krónur.

Það er löngu kominn tími til að mæta tekjulágu fólki sem vill eignast sitt eigið húsnæði og byggja upp eign í því til framtíðar en hefur ekki haft möguleika á að leggja fram þá fjármuni sem þurft hefur til þess að geta fjármagnað eigið húsnæði. Eins og við þekkjum getur jafnvel verið dýrara að greiða leigu á opnum leigumarkaði en að borga niður lán og vera þá að eignast í húsnæðinu. Það á að vera raunverulegt val fyrir fólki hvort það sé á leigumarkaði eða eigi sitt eigið húsnæði hvort sem það er tekjulágt eða efnað.

Við gerðum jákvæðar breytingar í meðförum þingsins með því að tryggja að almennt skuli úthlutað að lágmarki 20 % á ársgrundvelli til kaupa á hagkvæmu húsnæði utan höfuðborgarsvæðisins af þeim 4 milljörðum sem ætlaðir eru til þessa verkefnis á ári.

Við sem búum á landsbyggðinni og þekkjum vel til vitum að mjög mikill sogkraftur í búferlaflutningum er frá landsbyggðunum á höfuðborgarsvæðið og vitum að rík þörf er fyrir hagkvæmt húsnæði á landsbyggðunum sem standi líka tekjulágu fólki þar til boða.

Víða um land er verið að taka í gegn eldri fjölbýlishús og annað húsnæði sem telst hagkvæmt. Því þurfa ekki að vera eingöngu um  nýbyggingar að ræða til þess að geta fallið að kröfum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Ég tel að það muni styrkja landsbyggðirnar mjög mikið og búsetuþróun þar að í boði séu líka íbúðir og húsnæði fyrir tekjulága, þannig að fólk geti haldið áfram að búa á þeim stað sem það vill búa.

Önnur úrræði hafa farið vel af stað til stuðnings við fólk á húsnæðismarkaði. Þar má nefna almennar leiguíbúðir sem byggðar hafa verið víðs vegar um landið í samvinnu við sveitarfélög og verkalýðshreyfinguna. Einnig má nefna skattfrjálsa ráðstöfun séreignasparnaðar á fasteignalán sem komið hafa mörgum vel.

Vinstri græn leggja mikla áherslu á að koma til móts við erfiða stöðu tekjulágra í samfélaginu m.a. með góðu aðgengi að heilbrigðiskerfinu, menntun og samgöngum og þrepaskiptu skattkerfi og þessi aðgerð er stór þáttur í því að tryggja sem best afkomuöryggi tekjulágra og fyrstu kaupenda húsnæðis og mætir því samkomulagi sem gert var í Lífskjarasamningunum.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþm.

Höfundur er þingmaður VG og formaður atvinnuveganefndar.

 

DEILA