Skjaldborgarhátíðin tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2020

Frá Skjaldborgarhátíð á Patreksfirði.

Eyrarrósin, sem nú er veitt í sextánda sinn, er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Alls bárust 25 umsóknir um Eyrarrósina 2020 hvaðanæva af landinu.

Þrjú verkefnanna hljóta formlega tilnefningu til verðlaunanna og eiga þar með möguleika á að hljóta Eyrarrósina 2020. Þau eru: Kakalaskáli í Skagafirði, Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði. 

Sex verkefni voru valin á Eyrarrósarlistann í ár. Þau eru:

Skjaldborg – Hátíð íslenskra heimildarmynda (Patreksfjörður)

Júlíana – hátíð sögu og bóka (Stykkishólmur)

Kakalaskáli í Skagafirði (Akrahreppur)

Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði (Fjallabyggð, Siglufjörður)

Plan B Art Festival (Borgarbyggð/Vesturland)

Reykholtshátíð (Borgarfjörður/Vesturland)

Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 14. febrúar næstkomandi á Seyðisfirði, heimabæ handhafa Eyrarróasarinnar 2019; listahátíðarinnar List í ljósi. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar, Byggðastofnunar og  Air Iceland Connect.

DEILA