Ísfirðingurinn Leifur Bremnes, sem keppir fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar, vann silfurverðlaun í keppni með loftriffli á landsmóti Skotíþróttasambands Íslands sem fram fór um helgina á Akranesi og í Borgarnesi.
Leifur keppi einnig í skotfimi í frjálsri aðferð með skammbyssu og náði þar 3. sæti.
Um næstu helgi verður haldið landsmót á Ísafirði í tveimur skotgreinum. Það er annars vegar með riffli 60 skotum og í liggjandi stöðu og hins vegar verður keppt í þríþraut. Keppt verður í innistúkunni á Torfnesi.
Enn er opið fyrir skráningu og sendist hún á netfangið valurr@smart.is. Einnig er hægt að hringja í númer 8641341.