East Liverpool City Hospital í Ohio í Bandaríkjunum hefur sent tvo af stjórnendum sínum, á Rick Perez og Jim Emmerling auk tveggja annarra starfsmanna , til Íslands til þess að kynna sér lækningamátt sáragræðsluvöru Kerecis. Er ferð þeirra heitið til Ísafjarðar. Fyrirtækið notar roð til að græða sár og styrkja líkamsvefi, til dæmis við endurgerð á brjóstum og til viðgerðar á kviðslitum.
Frá þessu er greint í gær í blaðinu The Weirton Daily Times. Munu Bandaríkjamennirnir dvelja í vikutíma á Íslandi hjá Kerecis. Í greininni er ítarleg frásögn af fyrirtækinu Kerecis og staðsetningu þess á Ísafirði og stofnanda þess Guðmundi Fertram Sigurjónssyni. Þá er sagt frá þeim eftirtektarverða árangri sem náðst hefur í sáragræðslu með vörum Kerecis sem eru framleidd úr fiskroði.
Kerecis hefur verið að hasla sér völl í Bandaríkjunum sem er stór og kröfuharður markaður fyrir lækningavörur. Kerecis er með skráð einkaleyfi í Bandaríkjunum og fleiri löndum og hafa meira en 10 þúsund sjúklingar verið meðhöndlaðir með sáraroði félagins á undanförnum árum.
Mikið er í húfi fyrir Kerecis að ná góðri fótfestu á bandaríska markaðnum og gæti þessi heimsókn skipt miklu máli.