Sjóminjar: Hafliði Aðalsteinsson fær viðurkenningu

Í dag, 11. október 2021, veitir Samband íslenskra sjóminjasafna þremur valinkunnum mönnum viðurkenningu fyrir farsæl störf á sviði sjó- og strandminja um áratuga skeið. Þessir menn hafa starfað hver á sínu sviði en allir skilað sérlega drjúgu og merku lífsverki. Þetta eru Geir Hóm, Hafliði Aðalsteinsson og Þór Magnússon.

Geir Hólm varð safnstjóri Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði árið 1982 og starfaði við safnið til 75 ára aldurs, til ársins 2008 eða í 26 ár. Hann var meðal annars ötull við söfnun sjóminja á þeim tíma og gerði safnið að einu af merkustu sjóminjasöfnum landsins. Einnig lagði hann mikið af mörkum til varðveislu gamalla báta og ýmissa sögulegra mannvirkja á Austurlandi, meðal annars vitans á Dalatanga og tveggja af elstu húsum Eskifjarðar, Jensenshúss og Randulfssjóhúss.

Hafliði Aðalsteinsson hefur verið starfandi tréskipasmiður alla tíð, lærði fyrst hjá föður sínum og nam síðar við Iðnskólann í Reykjavík. Hann hefur smíðað nokkurn fjölda báta og einnig og ekki síst unnið að viðgerð og endurgerð eldri báta. Hafliði var stofnfélagi  og í forystu fyrir Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum sem sett var á stofn árið 2006. Félagið byggir á gjöf föður Hafliða, sem gaf þrjá báta og öll sín tæki til safnsins. Þá hefur Hafliði verið óþreytandi við að efla þekkingu á skipasmíðum og haldið fjölda námskeiða í skipasmíði í samastarfi við IÐUNA fræðslusetur, m.a. í Reykjavík og á Reykhólum.

Þór Magnússon var þjóðminjavörður á árunum 1968-2000. Eitt af þeim sviðum sem hann lét sig miklu varða var sjóminjar og bátavarðveisla. Var hann þar á margan hátt brautryðjandi því að Þjóðminjasafnið og byggðasöfnin höfðu sýnt meiri áhuga á sveitamenningu fyrri tíðar en minjum um sjósókn og siglingar. Í tíð Þórs hófst til að mynda markviss söfnun á gömlum bátum en þá voru söfnin á Íslandi ekki farin að sinna því svo heitið gæti. Þá má nefna hlut Þórs í að koma upp Sjóminjasafni Íslands í Hafnarfirði. Safnið markaði spor á sínum tíma þótt það starfaði í aðeins 15 ár.

Um Hafliða segir nánar í eftirfarandi greinargerð:

Hafliði Már Aðalsteinsson

húsasmiður og skipasmíðameistari

Hafliði fæddist 24. mars 1949 í Hvallátrum á Breiðafirði. Hann lærði hjá föður sínum Aðalsteini Eyjólfi Aðalsteinssyni sem rak skipasmíðastöði í Hvallátrum. Síðan stundaði hann nám við Iðnskólann í Reykjavík, tók sveinspróf í skipa- og bátasmíði 1970 og í húsasmíði 1989. Hann hefur meistarabréf í skipasmíði.

Hafliði hefur unnið að iðnum sínum og rak einnig verktakafyrirtæki með mági sínum í Búðardal  um tíma. Hann rak skipasmíðastöð í Kópavogi í kringum 1980 og smíðaði þar nokkra báta.

Hafliði er stofnfélagi í Félagi áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum árið 2006, varformaður frá upphafi og tók við sem formaður árið 2009 og hefur verið það síðan. Félagið byggir á gjöf föður hans, sem gaf öll sín tæki og þrjá báta til stofnunar félagsins. Hafliði var stofnfélagi í Báta- og hlunnindasýningunni ehf á Reykhólum árið 2012 og hefur verið formaður félagsins frá upphafi. Sjá  www.batasmidi.is 

Hafliði hefur verið óþreytandi í að efla þekkingu á skipasmíðum og hefur haldið fjölda námskeiða, í skipasmíði,  í samvinnu við IÐUNA fræðslusetur, m.a. í Reykjavík og á Reykhólum, Siglufirði, Akureyri o.v. Einnig hefur hann unnið að endurgerð ýmissa báta undanfarin ár.

Hafliði er kvæntur Jófríði Benediktsdóttur, kjóla- og klæðskerameistara og eiga þau tvær dætur. Þau hjónin voru útnefnd heiðursiðnaðarmenn Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík árið 2020.

DEILA