Halló kaupir símaverið á Ísafirði

Símaverið er til húsa í húsnæði Pólsins.

Nú í sumar keypti símsvörunar- og samskiptaþjónustan Halló rekstur Símaversins ehf. á Ísafirði. Sífellt fleiri fyrirtæki kjósa að útvista þjónustusamskiptum á borð við símsvörun, vöktun og svörun netspjalls og samskipta á samfélagsmiðlum. Í ljósi aukinna umsvifa eflist og stækkar Halló og er nú orðinn einn stærsti þjónustuaðili á þessu sviði á Íslandi  – og nú einnig með starfsstöð á Ísafirði.

„Störf eru ekki lengur háð staðsetningu vinnustaða og skrifborða frá klukkan 9-5 heldur vinnur fólk þaðan sem því hentar best. Þannig kemur Halló til móts við þarfir fólks í nútímasamfélagi með tæknilausnum og þekkingu sem skila sér í vandaðri þjónustu og ánægðum viðskiptavinum. Við tökum við frábæru starfsfólki og tugum viðskiptavina Símaversins og hlökkum til að efla samskiptaverið á Ísafirði til muna með Vestfirðingum,“ segir Andri Árnason, framkvæmdastjóri Halló.

Símaverið var stofnað árið 2006 og hefur því svarað í síma og sinnt samskiptum fyrir fjölmörg fyrirtæki um land allt undanfarin 15 ár. Fyrirtækið var upphaflega stofnað með það fyrir augum að efla atvinnulíf á Vestfjörðum og segir Hannes Hrafn Haraldsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Símaversins, að sameining við Halló muni án efa auka fjölbreytni í störfum á svæðinu.

„Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót. Að sjá samskiptaverið hér á Ísafirði eflast og stækka með tilkomu Halló býður upp á spennandi valkost í starfi fyrir þau sem hafa ánægju af því að veita öðru fólki góða þjónustu.‟

Halló er hluti af Miðlun ehf. sem hefur þjónustað íslensk fyrirtæki í meira en 40 ár. Halló annast símsvörun, vöktun netspjalls og samskipti við viðskiptavini í gegnum samfélagsmiðla, auk þess að sjá um rekstur þjónustuvera fyrir stærri fyrirtæki sem vilja veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu.


„Rekstur Símaversins og Halló verður sameinaður nú á næstu mánuðum og við hlökkum til að takast á við komandi verkefni. Það er af nægu að taka og ánægjulegt að sjá hve mörg fyrirtæki eru farin að sjá kosti þess að útvista þjónustusamskiptum við viðskiptavini á meðan þeirra fólk sinnir öðrum málum innan starfseminnar. Þannig verður heildarútkoman ánægjuleg fyrir alla, starfsfólk og viðskiptavini,‟ bætir Andri við.

Við Símaverið hafa starfað sex manns og segir Andri að þegar hafi verkefni verið færð vestur og að því stefnt að gera meira af því á næstu mánuðum.

DEILA