Golfklúbbur Ísafjarðar verður með námskeið

Golfklúbbur Ísafjarðar mun eins og síðustu ár halda sín árlega námskeið fyrir börn – og unglinga sem og nýliða. Í fréttatilkynningu frá klúbbnum segir að það stefni í gott golfsumar á Golfvellinum í Tungudal og verður Golfklúbbur Ísafjarðar með öflugt starf í sumar og býður upp á námskeið fyrir unga sem aldna. 

Upprifjunar- og nýliðakvöld

Næstkomandi mánudagskvöld hefst upprifjunar- og nýliðakvöld fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér golfíþróttina. Verður þetta haldið á þremur kvöldum:

Mánudaginn 7. júní frá 20:00 – 21:00

Þriðjudaginn 8. júní frá 20:00 – 21:00

Fimmtudaginn 10. júní frá 20:00 – 21:30

Barna- og unglinganámskeið

Mánudaginn 7. júní hefst einnig golfkennsla börn- og unglinga á aldrinum 7-12 ára en það verður haldið í tveimur lotum í júní.

Fyrsta lota: 14, 15 og 16 júní frá 10:00-11:30

           Önnur lota: 28, 29 og 30 júní frá 10:00-11:30

Kvennagolf

Eins og önnur sumur, þá verður kvennagolf á hverjum þriðjudegi fyrir skráða félagsmenn. Hefst kvennagolfið kl. 17:00 þar sem spilaðar verða 9 holur og boðið upp á súpu eftir hringinn. 

Félagsfundur

Mánudaginn 14. júní kl. 18:00 verður haldinn félagsfundur í golfskálanum í Tungudal þar sem stjórn félagsins kynnir hin ýmsu mál er varðar sumarstarfið og fer yfir þætti eins og framkvæmdir á vellinum, mótaskrá o.fl. 

DEILA