Vil auka lífsgæði fólks á landsbyggðinni

Framboðstilkynning frá Guðrúnu Sigríði Ágústsdóttur.

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 2.- 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Ákvörðun mín um að sækja fram er byggð á ríkum vilja til þess að ná fram breytingum sem ég tel að muni bæta lífsgæði fólks, sérstakleg á landsbyggðinni. Ég tel mig hafa margt fram að færa sem getur nýst til þess að bæta samfélagið. Ég er baráttukona með ríka réttlætiskennd og framsýni, og hef tekið þátt í og leitt smá og stór verkefni til hagsbóta fyrir samfélagið. Mörg baráttumál eru mér hugleikin, en allra mikilvægast finnst mér að jafna tækifæri landsbyggðarinnar og stuðla að uppbyggingu og bættum lífsgæðum. Ég hef mikinn áhuga á málefnum aldraðra og mun leggja ríka áherslu á að bæta heilbrigðisþjónustu á svæðinu, bæði með aukinni fjarþjónustu og fjölbreytni í þjónustuúrræðum. Aldraðir eiga svo sannarlega að geta valið hvar þeir búa sín síðustu ár, eins eiga foreldrar langveikra barna að geta búið við öryggi og fullnægjandi þjónustu í sínu samfélagi. Geðheilbrigðismál eru mér einnig ofarlega í huga, en mikill misbrestur er á aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu víða um land. Aukin aðgangur að heilbrigðisþjónustu er einnig mikilvægur þáttur í því að efla samkeppnishæfni landsbyggðarinnar. Mjög mikilvægt er að styðja við uppbyggingu ferðaþjónustunnar og þar tel ég að betri samgöngur séu lykilatriði. Blómleg ferðaþjónusta á landsbyggðinni skiptir sköpum fyrir aukna fjárfestingu, hún eflir nýsköpun og leiðir til fjölgunar mikilvægra starfa. Ferðaþjónusta, ásamt sjávarútvegi og landbúnaði, eru grunnstoðir atvinnulífs í Norðvesturkjördæmi og koma til með að efla efnahagslega sjálfbærni svæðisins til lengri tíma litið. Umhverfismál eru mér einnig hugleikin og sé ég mörg tækifæri fyrir Norðvesturkjördæmi að marka sér sérstöðu á því sviði.  

Ég er fædd og uppalin á Bíldudal í fjögurra systkina hópi. Foreldrar mínir eru báðir frá Bíldudal og stórfjölskyldan öll, ég er því svo lánsöm að hafa eytt æskunni í kringum allt mitt fólk. Ég flutti suður til þess að mennta mig sem matreiðslumaður og hef unnið ýmis störf tengd matvælaiðnaði og þjónustu allar götur síðan. Þrátt fyrir að hafa verið búsett í Reykjavík um árabil eru rætur mínar og hugur fyrir vestan. Ég hef verið svo lánsöm að geta dvalið mikið og hef ávallt fylgst náið með uppbyggingu og framþróun fyrir vestan. Frábært starf hefur víða verið unnið og mörg tækifæri eru enn ónýtt. Ég tel að þekking mín og rætur, ásamt samfélagslegum áhuga muni nýtast vel í að starfa að mikilvægum málum í kjördæminu. Ég stofnaði átaksverkefnið Lífskraft með það fyrir augum að beina athyglinni að og bæta þjónustu við krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Það verkefni kenndi mér að óbilandi trú, samstaða og samkennd getur flutt fjöll.

Ég sækist eftir stuðningi í 2. til 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður 16. og 19. júní næstkomandi.

G. Sigríður Ágústsdóttir

DEILA