Uppskrift vikunnar:matarmikil gúllassúpa

Man nú ekki hvar ég fann þessa uppskrift en ég hef eitthvað breytt og bætt við. Besta við súpuna er að hún dugar alveg í tvo til þrjá daga og verður bara betri með dögunum. Það er líka hægt að frysta hana og þægilegt að eiga hana í frystinum og hita þegar maður nennir ekki að elda.

Innihald

1,2 kíló smátt skorið nautagúllas
2 msk. smjör
5-6 laukar, skornir í tvennt og svo í sneiðar
1 rautt chilialdin saxað
3 tsk. paprikuduft
3 tsk. timían
4 tsk. kummín
3 krukkur maukaðir tómatar
6 msk. tómatpúrra
3 msk. hunang
2½ l vatn
6 teningar nautakraftur (líka hægt að nota 2 grænmetis og 4 nauta)
3 vænar bökunarkartöflur, skornar í teninga
1 sæt kartafla, skorin í teninga
4 dl rjómi
salt og pipar eftir smekk
Í raun er hægt að setja allt grænmeti í súpuna, fer bara eftir smekk manna. Ef ég á gulrætur set ég þær með.


Aðferð

Byrjið á að skera gúllasið í litla bita. Þerrið kjötið vel og kryddið með salti og pipar. Hitið stóran pott við fremur háan hita og bræðið smjörið. Brúnið
kjötið án þess að gegnsteikja það og setjið svo til hliðar.

Lækkið hitann og steikið laukinn í 10-15 mín, þannig að hann mýkist og breyti um lit. Bætið kjötinu aftur út í ásamt chili og kryddi og steikið aðeins áfram.

Setjið tómatpúrruna saman við ásamt krafti, tómötum, hunangi og vatni og hleypið suðunni upp. Flysjið kartöflurnar á meðan suðan er að koma upp og bætið þeim svo út í. Látið súpuna sjóða í 30 mínútur. Lækkið þá hitann, bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar.

Látið súpuna malla við vægan hita undir loki í 2-4 tíma. Því lengur því betra. Berið fram með sýrðum rjóma og steinselju.

Verði ykkur að góðu.

Halla Lúthersdóttir

DEILA