HSV er fyrirmyndahérað ÍSÍ

Á myndinni eru frá vinstri: Bjarki Stefánsson framkvæmdastjór HSV, Ásgerður Þorleifsdóttir formaður HSV og Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ. Mynd:hsv.is

Á ársþingi HSV sem haldið var 19. maí sl. hlaut Héraðssamband Vestfirðinga, HSV, viðurkenninguna fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Ásgerður Þorleifsdóttur formaður HSV tók við viðurkenningunni fyrir hönd sambandsins en það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem kom vestur til að afhenda hana.

Frá þessu er greint á vefsíðu Héraðssambandsins.

Fyrirmyndahérað ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar sem snýr að íþróttastarfi. Verkefnið var samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2015 og geta íþróttahéruð ÍSÍ sótt um að fá viðurkenningu til ÍSÍ fyrir fyrirmyndarstarf. Viðurkenningin fæst að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem ÍSÍ setur. Til að uppfylla skilyrðin sem fyrirmyndahérað þurfa íþróttahéruðin að fara í gegnum og uppfylla ákveðinn gátlisti með ýmsum atriðum um starfsemi íþróttahéraðsins.  

HSV hefur lengi unnið að þessari viðurkenningu og var það þáverandi framkvæmdastjóra HSV Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir sem bar hitann og þungann af undirbúningi þessarar viðurkenningar. HSV færir henni bestu þakkir fyrir hennar framlag til þessarar viðurkenningar.

DEILA