Sjálf í sviðsljósi

Komin er út hjá Háskólaútgáfunni bókin Sjálf í sviðsljósi sem fjallar um áhugaverða ævi Ingibjargar Steinsdóttur sem um tíma bjó á Ísafirði, en hún var gift Ingólfi Jónssyni sem var fyrstur manna bæjarstjóri á Ísafirði.

Í kynningu á bókinni segir: „Ingibjörg Steinsdóttir er ekki hér. Hún er ekki lengur til sem lifandi vera en minjar um ævi hennar liggja hins vegar eins og reki í margs konar ,,textum“.

Sögur af Ingibjörgu hafa verið skrifaðar og endurskrifaðar, sagðar og endursagðar, lesnar og túlkaðar á margvíslegan hátt.

Dótturdóttir og nafna Ingibjargar hitti ömmu sína aldrei í lifanda lífi en ólst upp við litríkar sögur af henni og stöðugan samanburð, bæði undir jákvæðum og neikvæðum formerkjum.

Í þessari bók freistar höfundur þess að komast að því hver Ingibjörg Steinsdóttir var en jafnframt að gefa henni rödd í sögunni.“

DEILA