Áfengisneysla ferðamanna fer fyrst og fremst fram á vínveitingastöðum. Þannig námu útgjöld ferðamanna á börum hér á landi um 2,5 milljörðum króna á síðasta ári sem gerir um 1.400 krónur á hvern ferðamann. Þetta samsvarar því að hver ferðamaður hafi að meðaltali keypt sér rúmlega einn bjór á bar hér á landi á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Hagfræðideildar Landsbankans á verslun og þjónustu sem greint er frá í Morgunblaðinu
Til samanburðar var kortanotkun erlendra ferðamanna í ÁTVR um 829 milljónir króna eða þriðjungur af neyslunni á börum. Töluverður hluti áfengisneyslu fer einnig fram á veitingastöðum og er hluti ÁTVR því enn minni en ætla má af ofangreindu. Ef gert er ráð fyrir að um 30% af reikningi á veitingahúsum sé áfengi fer hlutfall þess áfengis sem ferðamenn kaupa í gegnum ÁTVR niður í 11,6%.
smari@bb.is