Áformað er að flytja starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins. Meginmarkmiðið er að einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga en hlutverk stofnunarinnar er að innheimta meðlög.
Tillögur þessa efnis eru kynntar í greinargerð verkefnisstjórnar, sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skipaði, á grundvelli viljayfirlýsingar ríkis og sveitarfélaga frá janúar 2021, til að skoða fýsileika á tilfærslu verkefna við innheimtu meðlaga frá sveitarfélögum til ríkisins.
Eftirfarandi eru samanteknar tillögur verkefnisstjórnarinnar en nánari rökstuðning er að finna í meginmáli greinargerðarinnar sem og skýrslu Ríkisendurskoðunar:
- Ábyrgð á innheimtu meðlaga verði færð frá sveitarfélögum til ríkis.
- Teknar verði upp viðræður við dómsmálaráðuneytið um að sýslumaður sem innheimtumenn
ríkissjóðs taki við verkefninu og horft verði til Innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi í þeim
efnum. - Staðinn verði vörður um starfsemi Innheimtustofnunar sveitarfélaga bæði á Ísafirði og á
höfuðborgarsvæðinu. - Þegar verði ráðist í lagalega yfirfærslu verkefnisins, ábyrgð færð frá sveitarfélögum til ríkis, en
jafnframt verði útbúin verkefnaáætlun til 8-12 mánaða til að undirbúa yfirfærsluna. - Samtal milli ríkis og sveitarfélaga um fjárhagslegt uppgjör hefjist nú þegar.
- Staðin verði vörður um starfsöryggi og réttindi starfsfólks.