Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður Vinstri grænna, vill bjarga skipinu Maríu Júlíu sem var fyrsta varðskip og hafrannsóknarskip Íslendinga.
Í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær benti Lilja Rafney á að skipið ætti sér merka sögu en hafi legið í Ísafjarðarhöfn undanfarin ár þar sem það má muna sinn fífil fegurri.
„Byggðasafn Vestfjarða og minjasafnið á Hnjóti njóti keyptu skipið árið 2003 en þá átti að selja það til Suður-Afríku. Það naut varðveislu og stuðnings opinberra aðila fyrstu árinu en hefur legið í svokallaðri öndunarvél við Ísafjarðarhöfn síðan 2014 og fer hver að verða síðastur að bjarga þessum menningarverðmætum frá glötun …Og nú er unnið að því að leita stuðnings við þetta góða verkefni hjá ráðherrum á Alþingi svo hægt sé að fjármagna nauðsynlega viðgerð, svo bjarga megi þessu krúnudjásni að ég tel í sjósafnsgripum um haf og strandmenningu 20. aldar,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir á Alþingi í gær.