Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps ákvað á síðasta fundi sínum að festa kaup á alsjálfvirku hjartastuðtæki frá Fastus ehf af gerðinni LIFEPAKCR2. Tækið kostar 300 þúsund krónur og verður staðsett í Bjarnarfirði.
Hjartastuðtæki er ein áhrifaríkasta meðferðin við hjartastoppi og sýna erlendar rannsóknir m.a. að í 13% tilvika verður hjartastopp á vinnustað segir í fundargerð sveitarstjórnar.
Nánari staðsetning verður ákveðin síðar og þá verður auglýst kennsla á tækið.