Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hefst í dag

Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hefst í dag föstudaginn 20. ágúst.

Heiðagæsastofninn stendur sem fyrr mjög sterkur og taldi hann um hálfa milljón fugla skv. talningum ársins 2019.

Íslenski grágæsastofninn náði hins vegar hámarki árið 2011 með 112.000 fuglum. Síðan þá hefur grágæs fækkað og bentu talningar ársins 2019 til þess stofninn væri kominn niður í 73.000 fugla. Árið 2018 voru einungis taldar rúmlega 58.000 grágæsir í nóvembertalningum.

Vegna fækkunar í grágæsastofninum er það ósk Umhverfisstofnunar að veiðimenn gæti hófs við veiðarnar og tryggi þannig viðkomu stofnsins til framtíðar.

Ekki er alveg ljóst hvað veldur þessari fækkun á grágæs, en til að varpa ljósi á málið hefur Ísland tekið höndum saman við nágranna okkar á Bretlandseyjum með aukinni vöktun og nánara samstarfi. Á vormánuðum náðist samkomulag um merkingarátak sem mun vonandi veita frekari upplýsingar.

DEILA