Nýlokið er seinni úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna. Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 360 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 284 verkefni styrk. Í styrktum verkefnum eru 426 nemendur skráðir til leiks í alls 1200 mannmánuði. Miðað er við að hver nemandi fái styrk til þriggja mánaða til þess að vinna að tilgreindu verkefni.
Í þetta sinn var sótt um fyrir 1401 háskólanema. Alls var sótt um 1,2 milljarða króna eða laun í 3980 mannmánuði. Árangurshlutfall miðað við mannmánuði er 30%.
Frá Vestfjörðum fengu þessar umsóknir framgang eftir því sem næst verður komist:
- Nýjar aðferðir við gæðaeftirlit við framleiðslu lækningavara. Verkefnið snýst um notkun á tölvusjón í framleiðslu.
Leiðbeinandi: Jóhann Bæring Gunnarsson
Kerecis. 9 mánuðir og 3 starfsmenn - Þróun aðferðafræði með notkun dróna með hitamyndavél og gerð stafrænna yfirborðslíkana og þrívíddarlíkana sem nýtast til
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir
Leiðbeinandi: Náttúrustofa Vestfjarða. 3 mánuðir og 1 starfsmaður. - Gildi kríuvarpa fyrir æðabændur og æðadúnsrækt
Leiðbeinandi: Catherine Patricia Chambers
Háskólasetur Vestfjarða. 6 mánuðir og 2 starfsmenn. - Átthagafræði, sagnir og menning á Vestfjörðum. Samantekt á námsefni/efni og hönnun á námskeiði fyrir fólk sem starfar við kennslu, safnvörslu, ferðaþjónustu eða aðra miðlun á sögnum og menningu á Vestfjörðum.
Leiðbeinandi: Sædís María Jónatansdóttir
Fræðslumiðstöð Vestfjarða ásamt Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Ströndum og Þjóðfræðistofu 3 mánuðir og 1 starfsmaður. - Galdra- og þjóðagnaslóð á Ströndum. Leiðbeinandi: Anna Björg Þórarinsdóttir. Galdrasýningin á Hólmavík. 2 mánuðir og 1 starfsmaður.
- Greining á fjölbreytileika og magni sorps á sunnanverðum Vestfjörðum, úrræði við meðhöndlun lífræns sorps. Leiðbeinandi: Geir Gestson. Vesturbyggð. 3 mánuðir og 1 starfsmaður.