Sameiningarkosning V -Barð. : lýkur kl 18

Kosningu í Vesturbyggð og á Tálknafirði um sameiningu sveitarfélaganna lýkur nú kl 18 í dag eftir tæpan klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn var kjörsókn í Tálknafirði komin í 70% og í Vesturbyggð var hún fyrir skömmu um 50%.

Úrslit verða tilkynnt kl 22 í kvöld en talið verður í hvoru sveitarfélagi fyrir sig og þarf samþykki í báðum.

DEILA