Miðverðirnir Morten og Gustav framlengja samning sinn við Vestra

Miðvarðarparið öfluga, þeir Morten Ohlsen Hansen og Gustav Kjeldsen hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Vestra.

Morten og Gustav komu til Vestra fyrir síðasta tímabil og mynduðu fljótlega sterkt miðvarðarpar, sem var stór partur af því að liðið fékk fæst mörk á sig allra liða í Lengjudeildinni 2023.

Þetta er mjög mikilvægt fyrir liðið og mun án efa koma sér vel í baráttunni í deild þeirra bestu á næsta ári.

DEILA